Ađalvalmynd

Undirsíđukubbur

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Börn Ólafíu og Jóhannesar

Barnabörn

Barnabarnabörn

Barnabarnabarnabörn

RSS veitur

Dagskrá mótsinsGrund

Föstudagur

Húsið opnað kl. 16:00. Engin formleg dagskrá en fólk eigi að síður hvatt til að mæta á staðinn.

Laugardagur

14:30 Kynnisferð á þá staði sem Jóhannes og Ólafía bjuggu á í Saurbænum. Sjá nánar í útsendu dreifibréfi. Kynnisferðina endum við um kl. sex með því að leggja blóm á leiði forfeðra og ættingja okkar í kirkjugarði Staðarhólskirkju.

Kveikt upp í grillinu um kl. hálf sjö. Nefndin vekur athygli á því að það er bara eitt „tunnugrill“ í Tjarnarlundi og það væri því ágætt ef einhverjir gætu tekið með sér grill. Það verða kol á staðnum bæði fyrir „einkagrill“ og tunnugrill Tjarnarlundar. Á meðan grillið er að hitna setjast börn Jóhannesar og Ólafíu á rökstóla og ræða meðal annars fyrirkomulag næstu móta. Við borðum síðan öll saman og að borðhaldi loknu verður næsta nefnd valin en að öðru leyti er nefndin ekki með skipulagða dagskrá en treystir okkur öllum til að sjá til þess að þetta verði skemmtilegt kvöld.

Sunnudagur

Húsinu þurfum við að skila kl. 17:00 en þangað til getum við nýtt okkur þá aðstöðu sem staðurinn hefur uppá að bjóða.

Frestur til ađ stađfesta ţátttökuGrund

Til að geta ákveðið endanlegt þátttökugjald þarf nefndin að vita hve margir 16 ára og eldri ætla að koma. Frestur til að staðfesta þátttöku rennur út á miðnætti næstkomandi sunnudag, þann 27. júní. Eftir það mun nefndin tilkynna hvert þátttaökugjaldið verður.

Ágćtu ćttingjarGrund

Eins og fram hefur komið þá var ákveðið að halda ættarmótið í Tjarnarlundi í Saurbæ 23.–25. júlí. Við þurfum að borga 50.000 kr. fyrir húsið og aðstöðuna.  Það eru sturtur í kjallaranum í Tjarnarlundi og tjaldsvæðið er rétt við húsið og þar er nóg pláss.

Húsið verður opnað kl. 16 föstudaginn 23. júlí og við þurfum að skila því kl. 17:00 á sunnudag.

Þó ekki sé nein formleg dagskrá á föstudeginum hvetur nefndin fólk til að koma þann dag og lengja samveruna með því. Nefndin reiknar með að vera með tveggja til þriggja tíma dagskrá á laugardeginum áður en farið verður að huga að grillinu. Fyrirkomulag mótsins verður kynnt nánar með góðum fyrirvara hér á síðunni.

Nefndin ætlar að fylgja fordæmi síðustu nefndar og miða greiðslur fyrir þátttöku við 16 ára og eldri. Ekki er hægt að segja endanlega til um hvert þátttökugjaldið verður fyrr en fjöldi þátttakenda liggur fyrir en líklegt að það verði á bilinu 1.750 til 2.250 kr. fyrir 16 ára og eldri. Nefndin hvetur ykkur til að staðfesta þátttaöku sem allra fyrst.

Nú ćtlar Jóhanna ađ setja hér inn ýmislegt skemmtilegtGrund

Nýr bloggari eftir langt hlé... Nánar

Jóhanna ÓmarsdóttirGrund

Nú ætlar hún Jóhanna Ómarsdóttir að taka við völdum hér á blogginu, endilega fylgist með Grundargengi, þær eru með eitthvað á prjónunum Guðrún Ester og hún.
Gjörðusvo vel Jóhanna mín, nú fer ég hér inn öðru hvoru til að tékka stöðunaLaughing

Afmćli dagsins í dag !Grund

Jæja, þá er nú komið  því að ég er hætt að setja hér inn afmælisdagana ykkar, búin að gera þetta í eitt ár og læt staðar numið.

Gunna Jóh

Afmćli dagsins í dag 31/7Grund

Í dag á hún

 Guðrún Ester afmæli.

 Innilega til hamingju með daginn.



 
Guðrún Ester er dóttir Gunnu Jóh

Afmćli dagsins í dag 30/7Grund

Í dag á hún

Natasa Sorgic
 afmæli.


Innilega til hamingju með daginn




Natasa er konan hans Jóa hennar Dóru Jóh

Afmćli dagsins í dag 28/7Grund

Í dag á hún

 Guðrún Björk afmæli.

 Innilega til hamingju með daginn.




Guðrún Björk er dóttir Sigurbjargar Jóh

Afmćli dagsins í dag 25/7Grund

Í dag á hún

 Rakel Júlíana afmæli,
 hún er 2ja ára skotta.


 Innilega til hamingju með daginn.




 Rakel Júlíana er dóttir Marinós Hönnu Lóu hennar Jakobínu Jóh
Síđa 1 af 13

Klukkan

Ćttarmót Ólafíu og Jóhannesar

Undirsíđukubbur

Teljari